MG að hefja innreið á Íslandi

Athafnasvæði ökumanns MG ZS EV.
Athafnasvæði ökumanns MG ZS EV.

„Við teljum að MG ZS EV sé mjög spennandi valkostur fyrir þá sem velja fremur rafbíl en aðra kosti í samgöngumálum sínum og fjölskyldunnar. Hann er flottur og umhverfismildur bíll sem hentar mjög vel til ferðalaga hvert á land sem er. Við hjá BL búum að langri sögu í atvinnugreininni sem nær í raun allt aftur til ársins 1954 og við hlökkum til að hefja nýjan áfanga í rekstri fyrirtækisins þegar við frumsýnum rafbílinn MG ZS EV, nýjasta vörumerkið í bílaflóru BL.“

Þetta segir Erna Gísladóttir, forstjóri BL, í tilefni þess að fyrirtækið er komið með umboð fyrir breska bílsmiðinn MG. Er það ellefta vörumerkið sem BL hefur umboð fyrir hér á landi. MG var stofnað árið 1924. Er það frægt er fyrir sportlega bíla á hagstæðu verði. Þrátt fyrir mikla samkeppni náði þessi klassíski breski sportbíll athygli heimsins allt frá upphafi þegar MG 14/28, sem Cecil Kimber hannaði, kom fram á sjónarsviðið. Og í dag er það nýi rafknúni sportjeppinn MG ZS EV sem tekur við keflinu.

Hið sögufræga bílamerki MG, sem margir þekkja frá gamalli tíð, hefur formlega innreið sína á íslenska bílamarkaðinn 27. júní þegar BL frumsýnir og kynnir hinn nýja framhjóladrifna og rafknúna sportjeppa MG ZS EV í sýningarsalnum við Sævarhöfða. Auk sýningarbíla verða reynslubílar til taks fyrir þá sem vilja prófa þennan nýja rafknúna og rúmgóða sportjeppa.

Nýjasta rafbílatækni MG ZS EV

Hlutdeild umhverfismildra bíla hér á landi fer sífellt vaxandi á markaðnum og með MG ZS EV býðst almenningi nýr kostur til að velja úr. Bíllinn er fimm manna framhjóladrifinn sportjeppi sem fáanlegur verður til afhendingar strax í tveimur gerðarútfærslum; Comfort og Luxury. Kynningarverð BL fyrir nýjan MG ZS EV Comfort verður kr. 3.990.000 og fyrir Luxury kr. 4.390.000. Er Ísland eitt níu Evrópulanda þar sem MG er nú fáanlegur.

Rafbíllinn MG ZS EV er búinn vatnskældri og öflugri 44,5 kílóvattstunda (kWh) rafhlöðu sem hægt er að hraðhlaða frá 0-80% á aðeins 40 mínútum. Drægi rafhlöðu sportjeppans er 263 kílómetrar samkvæmt WLTP og hentar bíllinn því jafnt til innanbæjarakstur sem ferðalaga utanbæjar.

MG ZS EV hefur þegar hlotið fullt hús öryggisstiga hjá Euro NCAP og er bíllinn jafnframt fyrsti rafknúni sportjeppinn í sínum stærðarflokki (B-geiranum) sem hlýtur þessa toppeinkunn.

Öryggi meira en krafist er

„Fimm öryggisstjörnur MG ZS EV eru ekki til vitnis um það að bíllinn hafi aðeins staðist lágmarkskröfur í öryggisprófunum Euro NCAP til að hljóta 1. einkunn, enda býr bíllinn yfir búnaði sem er vel umfram þær lágmarkskröfur sem gerðar eru af hálfu stjórnvalda. Aðferðafræði Euro NCAP við mat á öryggi bíla og einkunnagjöfum er í stöðugri þróun í samræmi við sífellda tækniþróun bílaiðnaðarins. Þróun einkunnagjafa Euro NCAP endurspeglast m.a. í því að nú er árekstravörn meðal öryggisbúnaðar sem bílar þurfa að uppfylla til að hljóta 1. einkunn og 5 stjörnur í öryggisprófunum Euro NCAP,“ segir í tilkynningu.

Auk árekstravarnar býr sportjeppinn MG ZS EV yfir ýmsum öðrum öryggisbúnaði til aðstoðar ökumanni í umferðinni. Þar á meðal er öryggiskerfið MG Pilot L2+ sem sameinar t.d. virkni gagnvirka hraðastillisins (ACC), akreinavarans (LDW) og sjálfvirka neyðarhemilsins (AEB) sem ber m.a. kennsl á hjólandi og gangandi vegfarendur í umferðinni. Þá er MG ZS EV einnig búinn fjölvirku myndavélakerfi og ratsjá sem greinir mismunandi vegaðstæður af völdum veðurs og bregst við til að tryggja sem öruggastan akstur í umferðinni.

Ísland meðal þeirra fyrstu

Matt Lei, forstjóri MG Motor Europe, er spenntur fyrir íslenska bílamarkaðnum, sem hann segir vera meðal fyrstu norrænu markaðanna til að hefja á ný sölu á MG. „Við erum spennt fyrir því að Ísland skuli nú bætast í hóp þeirra Norðurlandaríkja sem þegar hafa hafið sölu á MG ZS EV, Noregs og Danmörku, og taka þátt í því að endurvekja MG í Evrópu. Við hlökkum því til að kynna MG ZS EV og hátækni sportjeppans fyrir landsmönnum. Við höfum fylgst með sífellt vaxandi áhuga Íslendinga á raf- og tengiltvinnbílum, sem deildu með sér fjórðungi heildarmarkaðarins hér á landi 2019. Við teljum jafnframt að Reykjavík sé mjög ákjósanlegur fyrsti stökkpallur í útbreiðslu þessa 100% rafknúna sportjeppa MG á Íslandi. Skilaboð okkar til Íslendinga eru þessi: MG hefur snúið aftur og nú með rafbíl á mjög samkeppnishæfu verði,“ segir hann.

agas@mbl.is

Drægi rafhlöðu sportjeppans MG ZS EV er 263 kílómetrar.
Drægi rafhlöðu sportjeppans MG ZS EV er 263 kílómetrar.
MG ZS EV rafjeppinn hefur þegar hlotið fullt hús öryggisstiga …
MG ZS EV rafjeppinn hefur þegar hlotið fullt hús öryggisstiga hjá Euro NCAP.
MG er sögufrægt og hátt í aldargamalt merki.
MG er sögufrægt og hátt í aldargamalt merki.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: