Mercedes-Benz og Nvidia í samstarf fyrir sjálfkeyrandi bíla

Daimler, móðurfyrirtæki Mercedes-Benz, og bandaríska tæknifyrirtækið Nvidia hafa gert með sér samstarfssamning um þróun tölvubúnaðar fyrir ökutæki. Tækninni er ætlað að styðja við þróun sjálfkeyrandi bíla í framtíðinni með sérstakri áherslu á öryggi, þægindi og upplifun notenda.

Mercedes-Benz mun útfæra tæknibúnað sinna bíla byggða á Nvidia Drive tölvutækni fyrir allar gerðir fólksbíla frá og með árinu 2024, að því er fram kemur í tilkynningu.

„Samstarf okkar við Nvidia mun hjálpa okkur að þróa áfram sjálfkeyrandi bíla. Með nýjustu tækni vinnum við saman að því að auka öryggi, þægindi og upplifun viðskiptavina Mercedes-Benz,“ sagði Ola Kallenius, forstjóri Daimler í sameiginlegri yfirlýsingu frá Daimer og Nvidia.

Samstarfinu er ætlað að tryggja að tækninýjungar nái til hönnunar bíla framtíðarinnar. Ekki aðeins með það í huga að bílar geti keyrt sjálfir, heldur geti lesið í hegðun manna og haft samskipti við umhverfi sitt. Ný tækifæri felast jafnframt í vörukaupum og þjónustu í bílnum.

„Við erum spennt fyrir samstarfinu með Mercedes-Benz. Með því að samnýta þekkingu og sýn fyrirtækjanna á nýsköpun og tækni stefnum við að því að gjörbylta akstursupplifun framtíðarinnar.“ sagði Jensen Huang, stofnandi og forstjóri Nvidia.

mbl.is