60,8% rafbílar og tengiltvinnbílar hjá Brimborg

Rafbíllinn Volvo XC40.
Rafbíllinn Volvo XC40.

Stöðug aukning hefur verið í hlutfalli rafbíla af heildarsölu Brimborgar og náði hlutfallið nýjum hæðum í júlí þegar það fór í 60,8% af seldum fólksbílum.

„Aukið úrval rafbíla og tengiltvinn rafbíla frá bílaframleiðendum Brimborgar skýrir aukna sölu enda finna sífellt fleiri viðskiptavinir rafmagnaða bíla við hæfi. Nú og næstu mánuði mun Brimborg geta boðið 24 gerðir rafmagnaðra bíla til sölu á Íslandi frá fimm bílaframleiðendum. Úrvalið er allt frá litlum borgarbílum til stórra, 7-9 manna bíla, fjórhjóladrifinna jeppa og allt þar á milli,“ segir í tilkynningu.

Þar er bætt við: „Volvo tengiltvinn jepparnir hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár og fljótlega mun Brimborg kynna 100% hreinan rafjeppa frá Volvo. Peugeot sækir mjög hratt inn á markaðinn með hreina rafbíla og tengiltvinnbíla og kynnti nýlega enn einn rafbílinn, e-2008. Ford kynnti nýverið Kuga tengiltvinnbíl og Ford Explorer tengiltvinn er nýkominn til Íslands og á næsta ári er von á Ford Mustang Mach-E rafbílnum. Citroën kemur inn á markaðinn í haust og vetur með C5 Aircross tengiltvinnbíl og e-C4 100% hreinan rafbíl. Mazda mun einnig kynna 100% hreinan rafbíl, MX-30, í haust.“

Með þessu aukna framboði rafmagnaðra bíla reiknar Brimborg með að hlutfall rafmagnaðra bíla af heildarsölu Brimborgar fari yfir 75% um næstu áramót.

Hlutdeild rafbíla í heildarsölu Brimborgar.
Hlutdeild rafbíla í heildarsölu Brimborgar.
Hreini rafbíllinn Citroen e-C4.
Hreini rafbíllinn Citroen e-C4.
Tengiltvinnbíllinn Ford Explorer
Tengiltvinnbíllinn Ford Explorer
Mazda MX-30 hreinn rafbíll.
Mazda MX-30 hreinn rafbíll.
Hreini rafbíllinn Peugeot e-2008.
Hreini rafbíllinn Peugeot e-2008.
mbl.is