Nýr Mercedes-Benz GLA á leiðinni

Hinn nýi Mercedes-Benz GLA.
Hinn nýi Mercedes-Benz GLA.

Nýr Mercedes-Benz GLA er kominn í sölu hjá Bílaumboðinu Öskju en fyrstu bílarnir verða afhentir í jólamánuðinum komandi.

Í tilkynningu segir að mikil eftirvænting hafi verið eftir þessum bíl, en GLA verður nú í boði í EQ Power tengiltvinnútfærslu með drægi á rafmagninu allt að 60 km. Búist er við að sú útfærsla af bílnum verði sérlega vinsæl.

Nýr GLA kemur með mjög breyttu útliti miðað við núverandi bíl, kraftmiklu og sportlegu. Forverinn kom fyrst á markað árið 2013 og hefur verið afar vinsæll hér á landi sem og víða um heim.

„Þótt GLA sé nettur er hann rúmgóður og býður upp á gott aðgengi í alla staði. Fótarýmið afturí hefur aukist og færa má seinni sætaröðina fram og aftur. Innanrýmið er meira m.a. höfurými fyrir ökumann og farþega og auk þess olnboga- og fótarými fyrir aftursætisfarþega.

Innanrýmið í nýjum GLA er mjög sportlegt og vel hannað og svipar til stærri lúxusbíla Mercedes-Benz með stórum og breiðum aðgerðarskjá og upplýstum lofttúðum. GLA er búinn hinu háþróaða MBUX afþreyingar- og upplýsingakerfi og raddstýringarbúnaðinum Hey Mercedes. Innnanrýmið er vandað í alla staði og boðið er upp á öll helstu þægindi sem Mercedes-Benz er þekkt fyrir. Í boði eru loftkæld sæti auk hita í sætum,“ segir í tilkynningu Öskju.

Auk þessa hefur öryggisbúnaður verið uppfærður verulega með sjálfvirkni sem tryggir öryggi bílstjórans og farþega. Bíllinn er m.a. í boði með akstursaðstoðarpakka, hemlunaraðstoð, Off-road tæknipakka o.fl.

GLA er minnsti sportjeppinn í breiðri línu Mercedes-Benz en þar eru GLC, GLE, GLS og hinn stóri og stæðilegi G-Class auk hins nýja rafmagns sportjeppa EQC.

Verðið á nýjum GLA er frá 6.590.000 krónum.

mbl.is