Nissan fagnar hálfmilljónasta Leafinum

Samgönguráðherra Noregs, Knut Arild Hareide, afhenti Maríu Jansen nýjan Leaf, …
Samgönguráðherra Noregs, Knut Arild Hareide, afhenti Maríu Jansen nýjan Leaf, sem er sá fimm hundruð þúsundasti sem Nissan hefur framleitt frá því raðsmíði hans 2010.

Starfsfólk bílaverksmiðju Nissan í Sunderland í Bretlandi fagnaði því í vikunni þegar hálfmilljónasta eintakinu af rafbílnum Leaf var ekið af framleiðslulínunni í bílmiðjunni í Sunderland í Englandi.

Bíllinn var afhentur eiganda sínum, Maríu Jansen, í Noregi í gær, í tilefni alþjóðadags rafbíla sem er í dag, miðvikudag.

Alls er áætlað að á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að fyrsti Leafinn fór út í umferðina hafi heildarfjölda þeirra í heiminum verið ekið um 14,8 milljarða útblásturslausa kílómetra og sparað kolefnislosun sem nemur meira en 2,6 milljónum tonna. Á Íslandi hafa rúmlega eitt þúsund Nissan Leaf verið nýskráðir sem sparað hafa umtalsverða kolefnislosun.

Ánægð með framleiðslunúmerið

María Jansen sagði í tilefni þess að hún tók við lyklinum að nýja bílnum í Noregi í gær að hún og eiginmaður hennar hefðu átt Leaf frá 2018 og verið afar ánægð með bílinn enda fullnægði hann vel þörfum þeirra.

„Nýi bíllinn er bæði mun langdrægari og tæknilega fullkomnari og svo er það auðvitað mjög skemmtilegt að það skuli hitta þannig á að hann hafi framleiðslunúmerið 500.000. Það gleður okkur mjög,“ sagði María þegar hún tók við lyklinum úr hendi Knut Arild Hareide, samgönguráðherra Noregs.

Hálfmilljónasti Nissan Leaf í klóm vélmena í smiðjunni í Sundereland.
Hálfmilljónasti Nissan Leaf í klóm vélmena í smiðjunni í Sundereland.
Hálfmilljónasti Nissan Leaf rennur af færiböndunum bílsmiðjunni í Sunderland í …
Hálfmilljónasti Nissan Leaf rennur af færiböndunum bílsmiðjunni í Sunderland í Englandi.
Hálfmilljónasti Nissan Leaf splunkunýr og fínn í Sundereland.
Hálfmilljónasti Nissan Leaf splunkunýr og fínn í Sundereland.
mbl.is