Kynnir áætlun um rafvæðingu vörubifreiða

Mercedes leggur vaxandi áherslu á rafmagn sem aflgjafa vörubíla. Hér …
Mercedes leggur vaxandi áherslu á rafmagn sem aflgjafa vörubíla. Hér eru nýju glutningabílarnir eActros, eActros LongHaul og GenH2.

Mercedes-Benz ætlar sér stóra hluti í framleiðslu á rafknúnum vörubílum á næstu árum. Mun framleiðsla hefjast á eActros vöruflutningabílnum árið 2021 en eActros verður með vel yfir 200 km drægi og er hann er hugsaður í vörudreifingu og þjónustu innan borgarmarka.

Þá mun Mercedes-Benz stefna að því að framleiðsla hefjist árið 2024 á eActros LongHaul sem verður langdrægari vöruflutningabíll sem knúin verður rafmagni með drægi nálægt 500 km.

Mercedes-Benz hefur einnig kynnt hugmyndabíl sem nefndur hefur verið Mercedes-Benz GenH2. Um er að ræða vörubíl með 40 tonna heildarþyngd og allt að 25 tonna burðargetu.

GenH2 gengur fyrir vetni og á að geta ekið allt að þúsund km á einni áfyllingu. Vetnisknúnir bílar eru í raun rafbílar þar sem vetnið er eldsneytið fyrir efnarafalinn sem síðan knýr rafmótorana.

Vetnið er geymt í fljótandi formi við -253°C á tank sem er inn í öðrum tank með lofttæmdu  rými milli tanka. Samkvæmt upplýsingum frá Daimler, eiganda Mercedes-Benz, er stefnt að því að reynsluakstur og prófanir viðskiptavina geti hafist á GenH2 vörubílnum árið 2023 og að fjöldaframleiðsla mun hefjast á síðari hluta áratugarins.

Mercedes-Benz hefur þegar komið fram með minni rafknúna atvinnubíla sem ganga fyrir hreinni raforku og má þar nefna eVito, eSprinter og EQV.

mbl.is