Nýr Across tvinnbíll er mættur

Suzuki Across er væntanlegur til landsins.
Suzuki Across er væntanlegur til landsins.

Suzuki bílar hf. munu frumsýna á næstu vikum nýjan Suzuki Across, sportlegan jeppa með tengiltvinntækni og E-Four rafrænu fjórhjóladrifi.

„Helstu útlitseinkenni Across eru skarpar línur og sportlegur framendi með opnu grilli. Að innan er Across hannaður til að vekja tilfinningu um þægindi, lúxus og akstursánægju. Mikið er lagt í hágæða efnisval í innréttingu ásamt mjúkum fyllingum í mælaborði og hurdaspjöldum. Að innan er nægt pláss fyrir ökumann og farþega og farangursrýmið er 490 lítrar,“ segir í tilkynningu.

Meðal staðalbúnaðar í Across er 9 tommu margmiðlunarskjár með Bluetooth, Android Audio, Apple CarPlay og bakkmyndavél, upphitanlegt leðurklætt stýri, 7 tommu upplýsingarskjár, díóðuframljós með sjálfvirkri hæðarstillingu, díóðu afturljós, sætishitarar að framan og aftan, sjálfvirk aðfelling á útispeglum, rafknúinn afturhleri með hreyfiskynjara, og 19 tommu álfelgur.

„Across er meðal öruggustu bíla á markaðnum, öryggisbúnaður m.a. árekstrarviðvaranir með sjálfvirkri neyðarhemlun, skynvæddur hraðastillir, stillanlegur hámarkshraði, blindblettavari, línuvörn, umferðaskiltalesari, bakkvörn og eCall neyðartilkynningarkerfi,“ segir einnig í tilkynningunni.

Í aflrásinni er að finna annars vegar 134 kílóvatta rafmótor sem skilar 270 Newtonmetra togi og hins vegar 2,5 lítra bensínvél.  Rafhlaðan er 18,1 kílóvattstunda. Á afturöxli er 40 kílóvatta rafmótor sem knýr E-Four fjórhjóladrifið og dreifir toginu á milli fram og afturhjóla. Hámarksafl drifrásarinnar er 306 hestöfl. Drægi bílsins á rafmagninu einu er 75 kílómetrar.

Samkvæmt upplýsingum frá Suzuki bílum kostar Across 8.590.000 krónur.

mbl.is