Mercedes-Benz EQS á markað á nýju ári

Lúxusrafbíllinn Mercedes-BenzEQS er enn í felulitunum en hann mun koma …
Lúxusrafbíllinn Mercedes-BenzEQS er enn í felulitunum en hann mun koma á markað á næsta ári.

Lúxusrafbíllinn Mercedes-Benz EQS mun koma á markað á næsta ári og verður hann flaggskip rafbílaflota þýska lúxusbílaframleiðandans. Mercedes-Benz kemur fram með nýjan arkitektúr á næsta ári sem byggir á rafmagni.

Mercedes koma með margar gerðir bíla á markað á næsta ári sem allir verða hreinir rafbílar og framleiddir af EQ deild Mercedes-Benz. Með þessum áætlunum ætlar fyrirtækið sér að vera leiðandi í þróun rafbíla á heimsvísu.

„EQS er glæsilegur og afar tæknivæddur lúxusrafbíll frá Mercedes-Benz og verður fyrsti EQ bíll Mercedes-Benz sem byggir á nýjum EVA undirvagni sem er stækkanlegur og liggur flatur undir bílnum líkt og hjólabretti. EVA undirvagninn gefur því meiri möguleika á auknu innanrými en áður hefur sést að sögn Mercedes-Benz. EQS verður búinn miklum lúxus og tækni fyrir ökumann og farþega og á að vera leiðandi rafbíll í lúxusflokki,“ segir í tilkynnngu.

EQS verður með allt að 700 km drægi og er búinn tveimur öflugum rafmótorum sem skila 469 hestöflum. Bíllinn er fjórhjóladrifinn og kemst úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 4,5 sekúndum. Hægt er að hlaða geyma bílsins allt að 80% hleðslu á innan við 20 mínútum.

EQS verður m.a. með nýjustu útgáfuna af MBUX margmiðlunarkerfinu. Hann verður búinn nýjasta Level 3 kerfi til sjálfaksturs og að sögn Mercedes-Benz verður bíllinn að fullu sjálfakandi í nánustu framtíð. Þá er hann með nýjustu tækni af stafrænum framljósum. AMG útgáfa af EQS kemur á markað fljótlega í kjölfarið, með tveimur rafmótorum sem skila alls 600 hestöflum.

„Það er margt spennandi framundan hjá Mercedes-Benz í rafbíladeildinni. EQC sportjeppinn er sá fyrsti sem kom á markað í fyrra og hefur fengið góðan orðstír og mikla athygli. Næstu hreinu rafbílarnir sem koma á markað eru EQA, EQB, eVito Tourer og EQV en Bílaumboðið Askja verður meðal fyrstu umboða í Evrópu sem fá þá bíla til sölu og eru þeir allir væntanlegir innan 8 mánaða. Sá fyrsti kemur hingað til lands í nóvember og eru það EQV og eVito Tourer. Í framhaldi koma EQA, EQS og EQB en þar endar ekki sagan því EQE, EQS SUV og EQE SUV munu koma stuttu síðar. Það má því með sanni segja að það sé rafmögnuð framtíð hjá Mercedes-Benz,“ segir í tilkynningunni.
 

mbl.is