Ofursportbíll sem kemst langt á vetninu

Hyperion XP-1
Hyperion XP-1

Vart líður sú vika að ekki séu færðar fréttir af nýjum bílum lítilla framleiðenda, gjarnar ofurbílum sem yfirleitt eru ekki hugsaðir til fjöldaframleiðslu.

Einn slíkur er hinn vetnisknúni Hyperion XP-1 frá samnefndu kalifornísku tæknifyrirtæki. Stílsterkur og kraftalegur að sjá er þessi ofurbíll. Hann er gefinn upp með eitt þúsund kílómetra drægi. Ekkert hefur verið látið uppi um afköst Hyperion XP-1 og hvað geymar hans taka við miklu vetni. Sagt er að hann sé búinn þriggja þrepa gírkassa og komist í hundraðið úr kyrrstöðu á aðeins 2,2 sekúndum og topphraðinn sé yfir 350 km/klst.

Hermt er að tómaþyngd bílsins sé 1.032 kíló en ekki liggur fyrir hvort það sé endanleg vigt.

Títan og koltrefjar eru byggingarefni bílsins, sem sagður er munu koma á markað árið 2022. Áætlar Hyperion að smíða alls 300 XP-1-bíla. agas@mbl.is

Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Hyperion XP-1
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: