BL býður heimsendingu á reynsluakstursbílum

Bílar sem BL fer með umboð fyrir á Íslandi.
Bílar sem BL fer með umboð fyrir á Íslandi.

Bílaumboðið BL hefur nú tekið upp þá nýbreytni að bjóða viðskiptavinum sem kjósa að fá sendan nýjan reynsluakstursbíl heim að dyrum í stað þess að gera sér ferð í sýningarsali fyrirtækisins við Sævarhöfða, Hestháls eða Kauptún.

Lánstíminn er eins og venja er varðandi reynsluakstur nýrra bíla og ákveðinn í samráði við viðkomandi söluráðgjafa hverju sinni.

Auk þess sem BL býður upp á heimsendingu á reynsluakstursbílum býðst viðskiptavinum einnig að fá söluskoðun og verðmat á núverandi heimilisbíl meðan á reynsluakstrinum stendur.

Heimsendingarþjónustan hefur engin áhrif á starfsemi í sýningarsölum BL sem opnir eru samkvæmt venju virka daga og á laugardögum. Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag heimsendingarþjónustunnar eru að finna á vefsíðu fyrirtækisins.

mbl.is