Vendi ekki fyrir hjartardýrin

Tíu þúsund hjartardýr drepast á breskum vegum ár hvert og …
Tíu þúsund hjartardýr drepast á breskum vegum ár hvert og því ljóst að um meiriháttar vanda er að ræða.

Hart er lagt að ökumönnum að hafa allan varann á sér á svæðum sem þekkt eru fyrir hjartardýr. Á fengitíma eru þau mun meira á ferðinni en alla jafnan og flækjast inn á vegi með aukinni slysahættu.

Þetta segir breska öryggisstofnunin GEM Motoring Assist. Sérfræðingar hennar áætla að meira en tvær milljónir hjartardýra sé að finna í landinu. Úttekt dýraverndunarsamtakanna RSPCA sýnir að um 75.000 þeirra komi ár hvert við sögu árekstra og að 10.000 þeirra drepist samstundis. Þar að auki farist milli 10 og 20 manns í þessum óhöppum. Fyrirtæki í bílgreininni áætla að tjón á ökutækjum sé ekki undir 11 milljónum punda á ári, um það bil tveimur milljörðum króna.

„Við hvetjum ökumenn til að skoða vel umhverfið í kring en við mælum með því við þá að sveigja ekki frá til að reyna að komast fram hjá vegna þeirrar auknu hættu sem snögg stefnubreyting á ferð hefur í för með sér,“ segir forstjóri GEM, Neil Worth. Hann bætir við að mest láti af athöfnum dýranna í dögun og við rökkurbil eða á sama tíma og fólk er að fara í eða koma úr vinnu. Sé árekstrarhættan þá mest á slóðum hjartardýranna.

En það eru ekki bara hirtirnir sem ökumenn þurfa að gæta að. Sums staðar í Bretlandi þurfa þeir einnig að gæta sín á villisvínum, sem víða hefur fjölgað hratt. Eru árekstrar við þau algengari í t.d. Forest of Dean-skóglendinu en við hjartardýr. Voru villisvínin nær útdauð fyrir 400 árum en stofninn hefur sótt í sig veðrið aftur og er nú talinn um eða yfir 2.600 dýr. Um 500 drepast í Forest of Dean ár hvert, annars vegar vegna skotveiða og hins vegar vegna árekstra við akandi umferð.

Villisvín geta orðið 150 kíló að þyngd fullvaxin sem þýðir að árekstur bíls og dýrs gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar. Það gerir þau sérstaklega varasöm að þau fara á stjá á vegunum eftir að myrkur er skollið á.

agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: