Í ljósi þess að sóttvarnaryfirvöld boða hertar samkomutakmarkanir hefur Brimborg ákveðið að fresta frumsýningunni á nýjum tengiltvinnbíl, Citroën C5 Aircoss PHEV.
„Citroen C5 Aircross PHEV er glænýr tengiltvinn rafbíll, langdrægur á rafmagni og einstaklega sparneytinn á bensín sem hentar vel í langkeyrslur með alla fjölskylduna og fullt af farangri,“ segir í tilkynningu.
Boðað var til frumsýningar á hinum nýja Citroen C5 Aircross á morgu,n laugardaginn 31. október, hjá Brimborg Reykjavík og Brimborg Akureyri. Nú hefur boðun hennar verið afturkölluð og bíður hún betri tíma.