Citroengæði með sjö ára ábyrgð hjá Brimborg

Brimborg lengir ábyrgðartíma Citroenbíla.
Brimborg lengir ábyrgðartíma Citroenbíla.

Nýir Citroenbílar frá Brimborg eru nú með sjö ára ábyrgð og átta ára ábyrgð á rafhlöðu. Að sögn umboðsins er um að ræða víðtæka Verksmiðjuábyrgð fyrir folks- og sendibíla.

„Citroën hefur verið í fararbroddi tækninýjunga í bílgreininni alla tíð í yfir 100 ára sögu sinni og býðst nú með sjö ára víðtækri verksmiðjuábyrgð á nýjum fólksbílum og sendibílum auk 8 ára ábyrgðar á drifrafhlöðu rafbíla.

Ábyrgðin er einnig háð akstri og takmarkast við akstur að hámarki 140 -160 þúsund km, hvort sem kemur á undan, km fjöldi eða tími. Ábyrgð drifrafhlöðu miðast við að hleðslugetan fari ekki undir 70% á 8 árum. Ábyrgðin er í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda um þjónustuskoðanir. Regluleg þjónusta og víðtæk verksmiðjuábyrgð nýrra Citroën bíla frá Brimborg tryggir meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu,“ segir í tilkynningu.

Þjónustuverkstæði Brimborgar eða viðurkenndir þjónustuaðilar Brimborgar á landsbyggðinni framkvæma reglubundna þjónustu á 12 mánaða eða 15.000 km fresti hvort sem kemur á undan km fjöldi eða tími og er þjónustueftirlitið á föstu verði. „Brimborg fylgir stöðluðu þjónustueftirliti framleiðanda sem tryggir að bíllinn er ávallt í topp standi,“ segir í tilkynningunni.

Citroen C5 Aircross er nú með sjö ára ábyrgð.
Citroen C5 Aircross er nú með sjö ára ábyrgð.
Citroen Jumpy (t.v.) og Citroen Berlingo Van eru nú með …
Citroen Jumpy (t.v.) og Citroen Berlingo Van eru nú með sjö ára ábyrgð og átta ára á rafhlöðu.
Citroen Spacetourer er nú með sjö ára ábyrgð.
Citroen Spacetourer er nú með sjö ára ábyrgð.
Citroen E C4 er nú með sjö ára ábyrgð og …
Citroen E C4 er nú með sjö ára ábyrgð og átta ára á rafhlöðu.
Citroen C5 Aircross tengiltvinnbíllinn (PHEV) er nú með sjö ára …
Citroen C5 Aircross tengiltvinnbíllinn (PHEV) er nú með sjö ára ábyrgð og átta ára á rafhlöðu.
Citroen C3 er nú með sjö ára ábyrgð og átta …
Citroen C3 er nú með sjö ára ábyrgð og átta ára á rafhlöðu.
Citroen Spacetourer er nú með sjö ára ábyrgð og átta …
Citroen Spacetourer er nú með sjö ára ábyrgð og átta ára á rafhlöðu.
Citroen C3 Aircross er nú með sjö ára ábyrgð og …
Citroen C3 Aircross er nú með sjö ára ábyrgð og átta ára á rafhlöðu.
mbl.is