Kia Sorento vinnur gullið stýri

Verðlaunabíllinn Kia Sorrento.
Verðlaunabíllinn Kia Sorrento.

Nýr Kia Sorento hefur verið sæmdur hinu eftirsótta Gullna stýri í Þýskalandi í gær. Í úrslitum lagði hann að velli Aston Martin DBX og BMW X6 í flokki stórra sportjeppa.

Verðlauninin eftirsóttustu veita fjölmiðlarnir Auto Bild og Bild am Sonntag. Þau voru fyrst veitt árið 1976.

Fjórða kynslóð Kia Sorento er nýkomin á markað og hefur fengið góðar viðtökur. Hann er   rúmbetri en forveri hans og er sjö manna. Bíllinn hefur auk þess mikla dráttargetu. Sorento kemur nú með þremur mismunandi orkugjöfum; sem tengiltvinnbíll (Plug-in Hybrid), tvinnbíll (Hybrid) og með dísilvél.

„Hinn nýi Kia Sorento er afbragðsgóður bíll. Akstureiginleikarnir eru sérlega góðir og hönnunin mjög vel heppnuð. Það er mikið pláss fyrir fólk og farangur, hönnun innra rýmisins er mjög góð sem og tækni og öryggisatriði,“ segir Tom Drechsler, aðalritstjóri Auto Bild.

„Við erum mjög stolt af þessum verðlaunum og að fjölmargir lesendur Auto Bild og Bild am Sonntag telji að Kia Sorento sé besti bíllinn í sínum flokki. Það er mjög ánægjulegt að Kia sé fyrir ofan tvö lúxusbílamerki Aston Martin og BMW sem segir okkur að Kia hafi hækkað upp í lúxusflokkinn með hinum nýja Sorento,“ segir Steffen Cost, framkvæmdastjóri Kia Motors í Þýskalandi.

Nýr Sorento var frumsýndur nýverið hjá Öskju. „Viðtökur hafa verið frábærar, enda er Sorento vel heppnaður bíll og kaupendahópurinn traustur hér á landi. Bíllinn skarar fram úr á ýmsum sviðum og hefur Arctic Edition útfærslan með 3,5 cm. upphækkun og 32" dekkjum vakið athygli. Þá er 2.500 kg. dráttargetan að heilla marga,“ segir Þorgeir R. Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.

Viðurkenningarnar sem kenndar eru við gullna stýrið að þessu sinni dreifðust sem hér segir:

Í flokki smábíla: Opel Corsa-e
Í flokki stórra smábíla: Audi A3 Sportback
Í flokki smájeppa: Ford Puma 1.0
í flokki jepplinga: Polestar 2
Í flokki  stórra jeppa: Kia Sorento 1.6
Í flokki meðalstórra tengiltvinnbíla: VW Tiguan eHybrid
Í flokki meðalstórra- og stórra tvinnbíla: BMW 330e
Í flokki sportbíla: Porsche Taycan
Besti bíllinn undir 25.000 evrum: Hyundai i20
Besti bíllinn undir 35.000 evrum: Seat Leon
Fallegasti bíll ársins: Porsche Taycan
Besta nýjungin: Lexus UX 300e

mbl.is