Leaf áreiðanlegasti notaði rafbíllinn

Rafbíllinn Nissan Leaf.
Rafbíllinn Nissan Leaf.

Rafbíllinn Nissan LEAF var á dögunum útnefndur áreiðanlegasti notaði rafbíllinn á breska markaðnum af tryggingafélaginu Warrantywise í Bretlandi sem sérhæfir sig í sölu framhaldsábyrgða á bílum eftir að framleiðsluábyrgð þeirra lýkur.

Útnefningin kemur í kjölfar samanburðarrannsóknar sem fyrirtækið gerði á mismunandi tegundum notaðra rafbíla þar í landi auk notaðra bensín- og dísilbíla, þar sem Leaf kom einnig betur út í samanburði við marga notaðra hefðbundinna bíla með sprengihreyfli, að því er segir í tilkynningu.

Meðal þátta sem Warrantywise skoðaði var tíðni viðgerða á verkstæði, algengar bilanir, kostnaður við viðgerðir og aldur bílsins þegar viðgerðir fóru fram, en í öllum tilfellum urðu bílarnir að vera að minnsta kosti þriggja ára. Samhliða var áreiðanleiki fólksbíla með sprengihreyfli kannaður og var Leaf sá sjöundi áreiðanlegasti í samanburði við þær tegundir sem kannaðar voru í þeim flokki.

mbl.is