Mini eykur úrval nýorkubíla

Mini Countryman Cooper af 2021 árgerð.
Mini Countryman Cooper af 2021 árgerð.

Breska bílamerkið Mini hyggst auka úrval raf- og tengiltvinnbíla á næstu misserum og árum auk þess sem leggja á aukna áherslu á markaði Kína með bílaframleiðslu þar í samvinnu við þarlent fyrirtæki að sögn Bernds Körber, yfirmanns hjá Mini.

Tuttugu ár eru nú liðin frá því að Mini gekk í endurnýjun lífdaga með kaupum BMW Group á bílaframleiðandanum. Á þeim tíma hafa verið framleiddar um fjórar milljónir bíla í verksmiðjunni í Oxford sem afhentir hafa verið viðskiptavinum í yfir eitt hundrað löndum um allan heim.

Þarfir og óskir viðskiptavina hafa ávallt mótað stefnu Mini og því kom Clubman t.d. á markað 2015 til að mæta þörfum og óskum um aukið flutningsrými. Í kjölfarið kom Countryman 2017 og standa Clubman og Countryman nú undir um 40% heildarsölu Mini ásamt því sem rafvæddar tegundir njóta sívaxandi vinsælda.

Aukin orkunýtni og óskert akstursánægja

„Akstursánægja, auðveld meðhöndlun og mikil afköst eiga sér djúpar rætur í huga fólks þegar Mini er annars vegar. Önnur kynslóð Mini, sem kynnt var árið 2000, fínstillti tengslin milli mikillar akstursánægju og eldsneytisnýtni, m.a. með tilkomu dísilvéla. Á árunum fram undan hófst þróun rafbíls og 2008 var Mini E framleiddur í takmörkuðu magni í tilraunaskyni til að þróa frekari þekkingu og reynslu á þessu nýja sviði aflgjafa sem nú ryður sér rúm um allan heim. Verkfræðingar BMW Group hafa náð einstökum árangri í þróun véla sem uppfylla í senn kröfuna um akstursánægju, mikil afköst og góða orkunýtni. Dæmi um það er t.d. tengiltvinnbíllinn Mini Countryman Plug-in Hybrid, sem eyðir aðeins um tveimur lítrum eldsneytis á hverja hundrað km og rúmum 13 kWh rafmagns á sömu vegalengd og losar aðeins 40-45 g kolefnis fyrir hvern ekinn km.,“ að því er segir í tilkynningu.  

Mini mun áfram bjóða viðskiptavinum sínum um allan heim upp á úrval mismunandi gerða rafbíla auk bíla með eyðslugrönnum bensín- eða dísilvélum í samræmi við ólíkar óskir og þarfir á mismunandi markaðssvæðum, þar sem vegsamgöngur eru mismunandi og innviðauppbygging fyrir þjónustu við rafbíla skammt á veg komin.

Meðal rafbíla sem væntanlegir eru frá Mini á næstu misserum eru t.d. þriggja dyra Mini Hatchback auk tveggja borgarjepplinga í sitthvorum stærðarflokknum. Þessir bílar verða einnig boðnir með sprengihreyfli.

Mini í Kína

Kína er stærsti markaður veraldar fyrir bíla og fer stækkandi. Kína er jafnframt fjölmennasta land veraldar, stórborgirnar fjölmargar og fjölmennar og í því ljósi er Kína afar mikilvægur vettvangur fyrir Mini, þar sem fyrirtækið selur 10% framleiðslu sinnar. Til að standa vörð um hagsmuni sína á kínverska markaðnum hefur verið ákveðið að hefja þar eigin bílaframleiðslu í samvinnu við kínverska framleiðandann Great Wall Motor sem mun sinna innlenda markaðnum með skilvirkari hætti en nú er unnt. Gert er ráð fyrir að framleiðslan hefjist 2023 og geri Mini kleift að mæta aukinni eftirspurn eftir rafbílum þar í landi.

Mini Countryman Cooper af 2021 árgerð.
Mini Countryman Cooper af 2021 árgerð.
mbl.is