Glænýr Peugeot 5008 frumsýndur

Hinn nýi sjö sæta Peugeot 5008 verður frumsýndur á laugardag, …
Hinn nýi sjö sæta Peugeot 5008 verður frumsýndur á laugardag, 23. janúar.

Brimborg frumsýnir glænýjan, sparneytinn og rúmgóðan sjö sæta Peugeot 5008 nk. laugardag, 23. janúar að Bíldshöfða 8 í Reykjavík, frá kl. 12-16.

„Hann er með nýjum, stórglæsilegum framenda þar sem nýtt grill, díóðu  framljós með háljósastoð og díóðu afturljós leika aðalhlutverk auk nýrrar i-Cockpit innréttingar,“ segir í tilkynningu.

Sjö sæti og rými fyrir þrjá barnastóla er í aftursætum Peugeot 5008. Eru  þrjú stök sæti í annarri sætaröð á sleðum og þremur Isofix festingum fyrir þrjá barnastóla. Auðvelt er að fella niður öftustu sætaröðina og stækka þannig farangursrýmið umtalsvert.

Bíllinn er með einstaklega mikla veghæð, 23,6 cm undir lægsta punkt sem er með því hæsta í flokki sjö sæta bíla og háa sætisstöðu sem gerir umgengni um bílinn mjög þægilega fyrir barnmargt fjölskyldufólk.

Ríkulegur staðalbúnaður einkennir nýjan Peugeot 5008. GPS vegaleiðsögn, bakkmyndavél með 180° víddarsýn, 10 tommu  margmiðlunarskjár, Mirror Screen speglun, ásamt nýjustu öryggistækni, til að mynda sjálfvirk neyðarhemlun. Bíllinn er með nýjustu kynslóð af i-Cockpit® innréttingu sem hefur verið uppfærð og sérhönnuð til að veita einstaka akstursupplifun.

Glænýr sjö sæta Peugeot 5008 er fáanlegur í þremur búnaðarútfærslum; Active Pack, Allure og GT sem henta vel mismunandi þörfum.

Á bílnum er víðtæk 7 ára ábyrgð en hún er þó  eingöngu í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustuferli framleiðanda.

Glænýr sjö sæta Peugeot 5008 kostar frá 5.690.000 krónum. Nánari  upplýsingar um bílinn er að finna á vef Peugeot á Íslandi peugeotisland.is

mbl.is