Fyrsti rafbíll Lexus frumsýndur

Lexus UX 300e verður frumsýndur hjá Lexus í Kauptúni, Garðabæ, …
Lexus UX 300e verður frumsýndur hjá Lexus í Kauptúni, Garðabæ, á morgun, laugardag.

Fyrsti rafbíllinn frá Lexus, UX 300e, verður  frumsýndur hjá Lexus í Kauptúni, Garðabæ, á morgun, laugardaginn 23. janúar, frá klukkan 12 til 16.

Lexus UX 300e er með 54 kílóvattstunda rafhlöðu og dregur rúmlega 300 km á hleðslunni.  Rafmótorinn skilar 150 kílóvatta afli, 204 hestöflum, og togið er 300 Nm. Hröðunin úr kyrrstöðu í hundraðið tekur aðeins 7,5 sekúndur.

Bíllinn fæst í þremur útfærslum, Comfort, Premium og Luxury og er verðið frá 8.490.000 krónum. Sjö ára ábyrgð er á öllum nýjum Lexusbílum og þeim fylgir 3ja ára þjónusta.

„Lexus UX 300e er nýjasta viðbótin við Lexus línuna. Hann er með hið sígilda og afgerandi Lexus-grill og glæsilegt innanrými sem hæfir kröfum þeirra sem vilja aka um á lúxusbíl. Aukið hefur verið við skottpláss í þessari útfærslu á bílum. 

UX 300e er útbúinn Lexus Safety System+ sem inniheldur árekstrarviðvörunarkerfi, e-call sem kemur bílnum í beint samband við Neyðarlínu eftir árekstur, akreinarakningu, sjálfvirkt háljósakerfi til að hjálpa ökumönnum að koma betur auga á gangandi vegfarendur og bíla í myrkri,  umferðarskiltaaðstoð sem greinir umferðarskilti og ratsjárhraðastilli,“ segir í tilkynningu.

Nánari upplýsingar um Lexus UX 300e er að finna á lexus.is

mbl.is