Með 20 Konur í útleigu

F.v.: Pálmi Viðar Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, og Heiðar J. …
F.v.: Pálmi Viðar Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar, og Heiðar J. Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi, við nýjan Hyundai Kona EV. Ljósmynd/Aðsend

Bílaleigan Akureyrar - Höldur ehf., hefur tekið við tuttugu bílum af gerðinni Hyundai Kona EV sem bílaleigan fékk afhenta nýlega hjá Hyundai á Íslandi við Kauptún í Garðabæ.

Um er að ræða premium-útgáfu þessa 100% rafbíls sem búinn er ríkulegum öryggis- og þægindabúnaði ásamt stærri og langdrægari rafhlöðunni, 64 kílóvattstunda, sem skilar snörpum 204 hestöflum og allt að 449 km drægi.

Pálmi Viðar Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóra Bílaleigu Akureyrar, segir í tilkynningu að bílarnir verði til taks á stærri starfsstöðvum bílaleigunnar fyrir jafnt innlenda sem erlenda leigutaka. Einnig verða þeir í boði í langtímaleigu, þar sem leigutíminn eru allt frá 3 að 36 mánuðum. „Við rekum í dag tæplega 150 rafbíla af ýmsum tegundum, þar á meðal frá Nissan, Renault og BMW frá BL auk annarra rafbílategunda,“ segir Pálmi Viðar.

Hann segir nýju Hyundai Kona EV rafbílana hreina viðbót við stækkandi rafbílaflota fyrirtækisins. „Við erum mjög ánægð með nýju viðbótina. Þarna er kominn mjög vel útbúinn og þægilegur bíll í allri umgengni með allt að 449 kílómetra drægni samkvæmt WLTP. Það eru einmitt svona bílar sem við höfum verið að bíða verið að bíða eftir. Það verður spennandi að sjá hvernig þeir reynast í rekstrinum,“ segir Pálmi.

Eina umhverfisvottaða bílaleigan

Bílaleiga Akureyrar er með ríflega 4.000 bíla í flota sínum og þar af meira en 500 umhverfismilda bíla af ýmsum gerðum. Markmið fyrirtækisins er að auka hlutfall þeirra í flotanum á næstu árum enda eru umhverfismál á meðal forgangsatriða í rekstrinum. Árið 2010 hlaut Bílaleiga Akureyrar umhverfisvottunina ISO 14001 sem viðhaldið hefur verið æ síðan og er fyrirtækið jafnframt eina bílaleiga landsins með vottunina.

Heiðar J. Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai á Íslandi, er ánægður með samninginn við Bílaleigu Akureyrar. „Hyundai Kona EV hefur komið mjög vel út á mörkuðunum. Hann er hástæður og þægilegur í allri umgengni, tæknilega vel búinn og síðast en ekki síst langdrægur. Ég hlakka til að sjá þessa bílaleigubíla í borgarumferðinni og á þjóðvegum landsins þegar við fáum erlenda ferðamenn á ný til landsins. Ég er þess fullviss að viðskiptavinir Bílaleigu Akureyrar verða ánægðir með Kona EV,“ segir Heiðar.

mbl.is