Rafbíladagar í Öskju

Askja býður yfir 30 gerðir bíla sem ganga fyrir rafmagni …
Askja býður yfir 30 gerðir bíla sem ganga fyrir rafmagni að hluta eða öllu leyti.

Dagana 11.-20. febrúar eru rafmagnaðir dagar í Bílaumboðinu Öskju á Krókhálsi 11-13. Þar verður lögð áhersla á veglegt framboð 100% rafbíla, tvinn- og tengiltvinnbíla frá Mercedes-Benz, Kia og Honda.

Askja býður yfir 30 gerðir bíla sem ganga fyrir rafmagni að hluta eða öllu leyti.  Má þar nefna  borgarbílinn Honda e, sem er 100% rafbíll. Úr fjölbreyttu rafbílaúrvali Kia kemur meðal annars  Kia Niro er sem er fáanlegur sem 100% rafbíll, tvinn- eða tengiltvinnbíll.

Frá Mercedes-Benz má nefna lúxus sportjeppann Mercedes-Benz EQC og atvinnubílana EQV og eVito en þeir taka allt að 9 manns í sæti. Þetta er einungis hluti af þeim rafbílum sem eru í boði hjá Öskju.

Á næstu dögum bætast við hinn nýi Mercedes-Benz EQA og sjö sæta jeppinn Kia Sorento sem kemur í tengiltvinn útfærslu. Forsala er þegar hafin á þessum bílum og verða þeir afhentir í næsta mánuði.

„Rafbílavæðingin hefur tekið stórt stökk á Íslandi undanfarið, bæði með fjölgun rafbíla og eflingu innviða hér á landi með tilkomu hraðhleðslustöðva um allt land. Á árinu 2020 var hlutfall nýrra bíla knúnir rafmagni að hluta eða öllu leyti um 70% á móti 30% sem eru einungis knúnir hefðbundnu jarðefnaeldsneyti. Það hafa því orðið miklar breytingar á bílamarkaðnum á síðustu 2 árum og við horfum á enn frekari þróun í þessa átt. Því má ætla að margir séu að skoða þann kost að velja rafbíl sem sinn næsta bíl,  enda hefur fjármögnun og rekstur þeirra sjaldan verið hagstæðari. Við bjóðum alla velkomna í Öskju til að kynna sér glæsilegt úrval rafmagnaðra bíla af ýmsum stærðum og gerðum,“ segir Arna Rut Hjartardóttir, markaðsstjóri Öskju í tilkynningu.

Askja býður upp á heildarlausnir fyrir rafbíla með sölu á hleðslustöðvum frá Innogy og aðstoð við uppsetningu.

mbl.is