Mercedes-Benz færir sig alfarið yfir í rafbíla

Sjö mismunandi rafbílamódel frá Daimler.
Sjö mismunandi rafbílamódel frá Daimler.

Þýski lúxusbílaframleiðandinn Daimler stefnir að því að framleiða eingöngu rafknúnar Mercedes-Benz bifreiðar í lok áratugarins. Framleiðandinn hyggst því hætta alfarið þróun bensín- og dísilbíla og þar með færa sig úr áðurkynntri „Electric First“ stefnu yfir í „Electric Only“.

Allar nýjar bíltegundir Mercedes-Benz verða alrafknúnar frá árinu 2025. Mercedes-Benz áætlar að hanna þrjár nýjar gerðir af undirvögnum sérætluðum fyrir rafbíla; MB.ES, sem verða miðlungsstórar til stórar farþegabifreiðar, AMG.EA, sem verða sportbifreiðar undir merkjum AMG, og VAN.EA, sem verða minni sendibifreiðar.

Frá og með árinu 2025 mun neytendum jafnframt gefast kostur á að kaupa alrafknúna gerð í öllum þeim flokkum sem Mercedes-Benz býður upp á bifreiðar.

„Hraði rafbílavæðingarinnar er að aukast og sérstaklega í flokki lúxusbifreiða, þar sem Mercedes-Benz staðsetur sig. Við færumst nær orkuskiptaviðsnúningnum og við verðum tilbúin þegar markaðir skipta alfarið yfir í rafmagn undir lok áratugarins,“ segir Ola Källenius, forstjóri Daimler og Mercedes-Benz.

Í ljósi þessara fyrirætlana hefur Daimler gefið út að Mercedes-Benz muni gefa í við rannsóknir og þróun og munu fjárfestingar vegna rafknúinna bifreiða á milli áranna 2022 og 2030 nema yfir 40 milljörðum evra.

Innan áratugar hættir Mercedes smíði bensín- og dísilbíla.
Innan áratugar hættir Mercedes smíði bensín- og dísilbíla.
mbl.is