Nýr Megane væntanlegur til landsins

Nýr Renault Megane.
Nýr Renault Megane. Ljósmynd/BL

Ný og gjörbreytt kynslóð hins vinsæla Renault Megane er væntanleg til BL í júní og eru forpantanir þegar hafnar. Ekki aðeins hefur Megane verið endurhannaður frá grunni að utan sem innan heldur kemur Megane í fyrsta sinn í alrafmagnaðri útfærslu sem ber heitið Megane E-Tech.

Bíllinn hefur þegar verið kynntur á sýningum víða á meginlandinu og sló strax í gegn hjá til að mynda Top Gear í Bretlandi sem útnefndi hann fjölskyldubíl ársins 2022.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá BL.

Fjölskyldubíllinn að mati Top Gear

Ytri hönnun Megane E-Tech kallar á athygli vegfarenda vegna sérkennandi útlitsins og lengra hjólhafs en áður var sem ásamt flötu gólfi skapa meira og þægilegra rými fyrir farþega og ökumann. Í umsögn sinni sagði dómnefnd Top Gear að með Megane E-Tech kæmi á markaðinn „Hatcback ársins fyrir fjölskylduna“ (Family Hatch of the Year 2022) þar sem sérstaklega var tekið til góðs rýmis, kraftmikillar akstursupplifunar, sportlegrar útlitshönnunar og fallegrar innréttingar.

Nýr Renault Megane.
Nýr Renault Megane. Ljómsynd/BL

Tekur allt að 130kW hraðhleðslu

Renault Megane E-Tech verður boðinn með vali um 40 kWh eða 60 kWh rafhlöðu við 160 kW rafmótor sem gefur annars vegar 130 hestöfl og allt að 300 drægni og hins vegar 220 hestöfl og allt að 470 km drægni. Bíllinn tekur mismunandi hleðslukosti, þar á meðal 22 kWh AC hleðslu, DC hleðslu og allt að 130kW hraðhleðslu í vönduðustu útgáfu bílsins.

Verðið kemur á óvart

Megane E-Tech verður boðinn í þremur búnaðarútfærslum, Equilibre, Techno og Ioniq og kostar grunnútgáan með 40 kWh rafhlöðunni 4.990 þúsundir króna. Megane E-Tech með 60 kWh rafhlöðunni kostar 5.690 þúsundir króna. Iconic er vandaðasta útfærsla Megane E-Tech með 60 kWh rafhlöðu við 220 hestafla rafmótor og afar vönduðum búnaði í farþegarými og miklum öryggisbúnaði kostar 6.490 þúsundir króna. 

mbl.is