Sýna Nissan Ariya 39 tommu breyttan

Breyttur Nissan Ariya.
Breyttur Nissan Ariya.

BL við Sævarhöfða kynnir í dag útgáfu af nýja rafjeppanum Nissan Ariya. Bresku hjónin Chris og Julie Ramsey hyggjast aka rafjeppanum 27 þúsund kílómetra leið frá Norðurpólnum til Suðurskautslandsins í samstarfi við framleiðandann Nissan – og í fylgd tveggja ökumanna á breyttum jeppum frá Arctic Trucks, þar sem breytingarnar voru gerðar hér á landi fyrir 39" dekk.

Ekið við erfiðustu aðstæður

Ökuferðin hefst í mars. Á meðan henni stendur mun Ariya takast á við öfgakennt landslag, svo sem ísjaka, djúpan snjó, brattar fjallshlíðar og eyðimerkuröldur. Arctic Trucks, sem býr að langri reynslu af akstri við erfiðustu aðstæður sem fyrirfinnast á jörðinni, þar á meðal á Norðurpólnum og Suðurskautslandinu, hönnuðu breytinguna á Ariya ásamt verkfræðingum Nissan og eru um þessar mundir að undirbúa ferðina við fjölbreyttar aðstæður á hálendi Íslands.

Lágmarksbreytingar gerðar

Í tilkynningu frá BL kemur fram að breytingum á bílnum var viljandi haldið í lagmarki og einskorðast nær eingöngu við fjöðrunarbúnað og brettavíkkanir til að mæta stærri hjólbörðum frá BF Goodrich. Engar breytingar voru gerðar á e-4ORCE fjórhjóladrifstækni bílsins, sem Nissan þróaði sérstaklega fyrir rafbíla, né heldur á rafhlöðukerfinu. Til að hlaða rafhlöðu Ariya á ferðalaginu verður með í för lítil og nett hleðslustöð tengd vindmyllu og sólarrafhlöðum sem nýtt verður til að hlaða Ariya á hvíldartímum leiðangursteymisins.

Kynningin fer fram á milli kl. 12 og 16 í dag. Þar verða m.a. viðstaddir tæknisérfræðingar frá Arctic Trucks sem veitt geta áhugasömum gestum ítarlegar upplýsingar um hönnun breytingarinnar á Ariya og leiðangurinn fram undan. Einnig hefur Nissan opnað sérstaka upplýsingasíðu á netinu þar sem leiðangurinn er kynntur og hægt er að nálgast hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina