Skreytir fyrir ferminguna með gömlu dóti

Eleni Podara er arkitekt frá Grikklandi sem er sérfræðingur í …
Eleni Podara er arkitekt frá Grikklandi sem er sérfræðingur í að finna gamla íslenska hluti á mörkuðum í borginni sem hún gerir upp og stílfærir á sinn einstaka hátt. mbl.is/Aðsend

Eleni Podara er arkitekt frá Grikklandi sem er sérfræðingur í að finna gamla íslenska hluti á mörkuðum í borginni sem hún gerir upp og stílfærir á sinn einstaka hátt. Hún notaði þannig hluti til að gera fermingarveislu Hrafnhildar fósturdóttur sinnar fallega.

Eleni starfar sem framleiðsluhönnuður fyrir kvikmyndaiðnaðinn og leikhúsin í landinu. Hún er einnig útstillingahönnuður hjá Ikea á Íslandi.

Hún er gift Steindóri Grétari Kristinssyni tónlistarkennara. Fjölskyldan fermdi Hrafnhildi Steindórsdóttur í fyrra og kom Eleni að skreytingum fyrir veisluna.

Eleni er með einstakan stíl og þykir sérfræðingur í að finna gamla íslenska hluti á mörkuðum í borginni sem hún gerir upp og stílfærir á sinn einstaka hátt.

Undirbúningurinn skemmtilegur

„Það var ótrúlega gaman að koma að þeirri vinnu að skreyta fyrir Hrafnhildi. Við Lilja mamma hennar erum góðar vinkonur og þekkjumst vel og höfum unnið saman í verkefnum áður. Hún er eigandi verslunarinnar Fisher og ég sá um hönnun þeirrar verslunar.

Veislan var haldin í gamla sal Skógræktarfélags Reykjavíkur við Elliðavatn.“

Eleni segir að undirbúningurinn hafi verið skemmtilegur og leggur áherslu á að þetta sé hluti af daglegu starfi hennar og því hafi þetta verið frekar auðvelt. ,,Ég myndi mæla með að fermingarbarnið fengi að velja sér uppáhaldslit sem væri svo gegnumgangandi í veislunni. Staðurinn þar sem við héldum veisluna var svo sérstakur og hrár, með steinum og við. Af þeim sökum völdum við svartan lit og brúnan, hrein náttúruleg efni og svo bleikan lit sem fór fallega með öllu hinu. Ég keypti allskonar hluti og skraut úr Góða hirðinum, frá ABC nytjamarkaðnum, Rauða kross-búðunum og af fleiri stöðum. Ég málaði og gerði upp hluti og fjölskyldan tók þátt í þessu með mér. Mér finnst skipta sérstaklega miklu máli að fermingarbarnið fái tækifæri til að taka sem mestan þátt. Að eyða helginni í að mála og undirbúa ferminguna öll saman er einstaklega gefandi og gott fyrir alla. Það gefur fólki tækifæri til að kynnast og vera skapandi saman, mála og tengja á mörgum sviðum.

Eleni segir að hvítu dúkarnir sem þau hafi notað hafi verið hluti af listrænni upplifun gestanna. „Dúkarnir voru einnota og pennar voru á öllum borðum svo gestirnir gátu teiknað á borðdúkinn sín listaverk.“

Öll umgjörð í kringum ferminguna var listræn og falleg.
Öll umgjörð í kringum ferminguna var listræn og falleg. mbl.is/Aðsend

Mælir með að fólk prófi sig áfram

Eins hafi falleg blóm verið á einu borði, mynd af fermingarbarni og fleira hefðbundið. Þegar kemur að blómum er Eleni með einstakt auga. Hún mælir með að fólk prófi sig áfram, kaupi jafnvel tilbúna blómvendi og taki blómin í sundur og flokki í minni vasa. ,,Eins vorum við með ljósmyndsýningu með skjávarpa sem var skemmtilegt. Sér í lagi þar sem valdar voru myndir þar sem fermingarbarnið var að gera skemmtilega hluti. Það skapar tilefni til umræðu og er verulega gaman að hafa í svona veislum.“

Í fermingarveislunni voru dúkarnir einnota. Gestirnir gátu málað og gert …
Í fermingarveislunni voru dúkarnir einnota. Gestirnir gátu málað og gert fallega list á borðin. mbl.is/Aðsend

Þegar kemur að matnum mælir hún með að ef um hlaðborð er að ræða sé sniðugt að setja litla merkimiða við hvern disk. „Eins ef fólk býður upp á mat, má prenta út matseðla fyrir gestina, með nafni fermingarbarnsins á. Það gerir borðið fallegt og skemmtilegt. Hún mælir með etsy.com og þá brúðkaupsmatseðlum sem breyta má í fermingarmatseðil og síðan er auðvelt að prenta bara matseðlana út sjálfur.

Gestir fengu hluta af veislunni heim

Eleni finnst áhugavert að hafa fermingarveislur umhverfisvænar. „Ég mæli með að forðast að kaupa plaströr, síðan ef fólk vill nota plastglös og -diska, þá má alltaf kaupa aðeins vandaðri fjölnota tegundir.“

Fyrir þá sem eru í vanda með t.d. blómin þá mælir Eleni með íslensku fagfólki. „Það er fagfólk á hverju strái hér. Ég mæli sem dæmi með blómabúðinni 4 árstíðum. Gestirnir í okkar veislu elskuðu skreytingarnar sem við vorum með svo við gáfum þeim sem vildu blóm með sér heim. Mér finnst það fallegt að skreytingar úr veislunni hafi fengið að lifa á heimili gestanna áfram.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert