Yngri sonur Carrie Underwood er greinilega smekksmaður á tónlist ef marka má nýjasta myndbandið sem Underwood setti á Instagram. Í því má sjá Jacob litla hágrátandi á meðan pabbi hans, Mike Fisher, syngur fyrir hann. Um leið og Underwood byrjar að syngja þá róast litli karlinn hins vegar.
Underwood er á tónleikaferðalagi um Bandaríkin, Kanada og Bretland um þessar mundir og er öll fjölskyldan með henni, þar með talinn hinn 5 mánaða gamli Jacob. Það er nú kannski skiljanlegt að litli guttinn vilji frekar hlusta á heimsfræga söngkonu syngja heldur en laglausan pabba sinn.
View this post on InstagramEveryone’s a critic...🤷♀️ @mfisher1212 @vincegillofficial 😂
A post shared by Carrie Underwood (@carrieunderwood) on Jun 22, 2019 at 8:32pm PDT