Stjörnuhjónin Priyanka Chopra og Nick Jonas giftu sig í desember í fyrra og geta fjölmiðlar ekki hætt að fjalla um mögulegar barneignir þeirra. Hún talaði sjálf um áætlandir sínar í viðtali við indverska Vogue á dögunum en leikkonan prýðir forsíðu tímaritsins að því er fram kemur á vef Poeple.
Bandaríski tónlistarmaðurinn er bara 26 ára en indverska leikkonan er hins vegar 37 ára og hefur skapast mikill áhugi fjölmiðla á hvort hjónin ætli að fara eignast börn, að hluta til vegna aldurs Chopra.
„Að kaupa hús og eignast barn er á verkefnalistanum,“ segir Chopra í viðtalinu og sér fyrir sér að byggja upp framtíð sína með Jonas í Los Angeles.