Ingileif og María tilkynntu nafnið með pubquizi

María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir
María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir Eggert Jóhannesson

Hinar nýbökuðu mæður Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir fóru ansi skemmtilega leið til að tilkynna nafnið á nýfæddum syni sínum. Ingileif og María héldu nafnaveislu í gærkvöldi, en þær héldu pubquiz fyrir gestina. 

Gestum var skipt upp í lið, og voru 14 spurningar. Fyrsti stafurinn í réttu svörunum myndaði svo orðarugl og áttu gestir að giska þannig á nafnið. Aðeins eitt lið var með rétta spurningu og fékk stoltur stóri bróðir að tilkynna nafnið Rökkvi. 

View this post on Instagram

Rökkvi Maríuson 🖤

A post shared by Ingileif Friðriksdóttir (@ingileiff) on Sep 19, 2019 at 1:34pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert