Brooke Shields og dætur í eins baðfatnaði

Það muna margir eftir leikkonunni Brooke Shields í baðfatnaði í …
Það muna margir eftir leikkonunni Brooke Shields í baðfatnaði í kvikmyndinni The Blue Lagoon frá árinu 1983. mbl.is/Instagram

Það muna án efa margir eftir leikkonunni Brooke Shields á baðfötunum í kvikmyndinni The Blue Lagoon. Leikkonan, sem býr í Greenwich Village á Manhattan með eiginmanni sínum handritshöfundinum Chris Henchy og dætrum sínum tveimur þeim Rowan Francis 18 ára og Grier Hammond 15 ára, lét sér fátt um finnast og skottaðist á ströndina um helgina. 

Shields eins og svo margir aðrir fór á ströndina í Southamptons og birti fallega ljósmynd af sér og dætrum sínum í eins baðfatnaði. Þær klæddust sundfatnaði frá American Eagle úr Gingham-línunni. 

Það virðist vera vinsælt um þessar mundir að fræga fólkið klæði sig í sundfatnað í stíl við börnin sín. Fyrirsætan Gigi Hadid birti ljósmynd af sér nýverið í sundfatnaði í stíl við litla barnið sitt sem og Emily Ratajkowski. 

Shields og Henchy giftu sig árið 2001 og hafa verið saman síðan sem þykir góður árangur í heimi kvikmyndanna. 

Hún hóf störf ung að aldri sem fyrirsæta og sló eftirminnilega í gegn í kvikmyndinni The Blue Lagoon árið 1980. 

Árið 1983 tók Shields sér hlé frá störfum og fór í Princeton-háskóla. Í skólanum eignaðist hún sinn fyrsta kærasta. Hún var lengi vel óörugg með sjálfa sig, sem kann að hljóma  einkennilega í eyrum marga sem hafa í gegnum tíðina litið á hana sem eina af fallegustu konum veraldar. Shields segir útlit og öryggi ekki fara saman. Hún hefur margsinnis talað um hversu dásamlegt er að vera móðir þótt það hafi ekki alltaf verið henni auðvelt. 

Page Six 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert