Ástralska Crossfit-stjarnan Tia-Clair Toomey og eiginmaður hennar, þjálfarinn Shane Orr, eignuðust stúlku hinn 9. maí síðastliðinn.
Toomey hefur unnið sex heimsmeistaratitla í röð í Crossfit á árunum 2017 til 2022, en hún gat ekki tekið þátt í heimsleikunum í ár vegna óléttunnar. Þrátt fyrir það hefur hún ekkert gefið eftir og verið dugleg að æfa á meðgöngunni.
Hjónin kynntust fyrst í menntaskóla þegar þau kepptu bæði í þríþraut, en þau gengi í það heilaga árið 2017. Toomey og Orr tilkynntu óléttuna svo á aðfangadag 2022 með færslu á samfélagsmiðlum.
Þau gerðu hið sama þegar dóttir þeirra, sem hefur þegar fengið nafnið Willow Clair Orr, kom í heiminn.