Karlmaður um borð í flugi frá Louisiana-ríki til Norður-Karólínu-ríki í Bandaríkjunum lét höggin dynja á sætinu fyrir framan sig þegar konan sem í því sat hallaði því aftur.
Konan, Wendi Williams, tók upp myndband þar sem sést hvernig maðurinn á bakvið hana lætur höggin dynja á sæti hennar.
Williams birti myndbandið á Twitter og hafa spunnist umræður um það hvort það megi halla sæti sínu í flugvél. Málið er að sjálfsögðu hitamál og hafa mörg orð fallið í þeirri umræðu.
Williams segir að höggin hafi byrjað þegar hún hallaði sæti sínu. Hann hafi ekki beðið hana kurteisilega um að rétta sæti sitt við. Williams rétti sæti sitt við þegar hún borðaði en að því loknum hallaði hún sætinu aftur og byrjuðu þá höggin að dynja aftur.
Á Twitter hefur Williams lýst þessu sem líkamsárás en margir eru ósammála henni og segja karlmanninn hafa verið í fullum rétti að nota sæti hennar sem boxpúða. Þau voru um borð í flugi American Airlines og Williams segir að flugfélagið hafi sagt henni að hún hafi verið í fullum rétti að halla sæti sínu í fluginu.
I know that I was told by AA that I had every right to recline my seat. We have yet another candidate to write a book on etiquette. Also, I’m sure by your heated reaction, that you’d kowtow to someone who had just punched your seat - Again, prior to the video, it was punching! https://t.co/adEzVLN0oe
— wendi (@steelersfanOG) February 14, 2020
Sounds about right! Thank you for your input. He reacted like a 2 year old, but as a wise young man said to me today, “Don’t insult 2 year olds like that!” I’m neither selfish nor inconsiderate. YOU are SOMETHING, though! Keep trolling up & digging down for this “man”. https://t.co/BRxCwm7OnC
— wendi (@steelersfanOG) February 14, 2020