Humarsúpan á Bryggjunni ein sú besta

Bestu humarsúpuna er að finna á Bryggjunni í Grindavík.
Bestu humarsúpuna er að finna á Bryggjunni í Grindavík. Ljósmynd/Facebook

Humarsúpan á Café Bryggjan í Grindavík er ein sú besta að mati ritstjóra Condé Nast Traveler. Samfélagsmiðlastjóri ferðatímaritsins, Mercedes Bleth, segist enn hugsa um súpuna sem hún smakkaði þar á síðasta ári þrátt fyrir að vera í margra kílómetra fjarlægð í New York í Bandaríkjunum. 

Ritstjórar Condé Nast Traveler tóku saman bestu máltíðirnar sem þeir fengu sér á ferðalagi. Á listanum eru fjölbreyttar máltíðir á hinum ýmsu veitingahúsum víða um heim. 

„Þetta er dálítinn spöl frá Reykjavík, á suðvestur Íslandi við höfnina í Grindavík, um klukkustundarakstur frá borginni. En það er nauðsynlegt að kanna landið vel þegar maður heimsækir Ísland. Eftir að þú ert búinn að taka hökuna upp úr gólfinu af hrifningu yfir landslaginu á leiðinni langað, þá þarftu að setja bensín á tankinn (og hlýja þér). Á Café Bryggjan er kósí andrúmsloft, og ég naut einnar bestu humarsúpu sem ég hef smakkað. Maður skammtar sér sjálfur og maður fær fría ábót með dásamlegu nýbökuðu brauði til að klára súpuna upp til agna. Núna þegar harka færist í veturinn í New York, þá hugsa ég til súpunnar á þessum litla stað við höfnina, aftur og aftur,“ skrifar Bleth. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert