Mary krónprinsessa Danmerkur er farin til Ástralíu fyrir jólin með tvíburana Vincent og Jósefínu. Eldri börnin og Friðrik krónprins munu koma síðar.
Mary prinsessa á fjölskyldu í Ástralíu sem hún ætlar að heimsækja. Talið er að fjölskyldan snúi svo aftur til Danmerkur fyrir jól og verji aðfangadagskvöldi í höllinni Marselisborg í Árósum.
Mikið hefur mætt á fjölskyldunni í kjölfar frétta um að Friðrik krónprins ætti í meintu ástarsambandi við aðra konu. Til þeirra sást í Madrid og gisti hann heima hjá henni. Hann hefur ekki viljað tjá sig um málið og höllin segist almennt ekki tjá sig um sögusagnir.
Friðrik hefur verið giftur Mary krónprinsessu í 19 ár og eiga þau fjögur börn saman.