65 ára afmæli Fríhafnarinnar fagnað með nýrri verslun og borðaklippingu

Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, klippti á borða þegar verslunin var …
Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, klippti á borða þegar verslunin var opnuð.
Ferðalangar hafa tekið eftir því að miklar framkvæmdir hafa staðið yfir á Keflavíkurflugvelli. Nú hefur ný komuverslun Fríhafnarinnar vereið opnuð eftir miklar breytingar og var því fagnað með borðaklippingum. 
„Okkur þótti mikilvægt að verslunin, sem er fyrsta stopp ferðafólks á Íslandi, endurspeglaði íslenska náttúru og menningu. Litirnir, efnisvalið og innréttingarnar voru hannaðar með Ísland í huga,“ segir Þorgerður Þráinsdóttir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar og bætir við: 
„Við tókum þá ákvörðun snemma í hönnunarferlinu að hafa einnig íslenskuna í forgrunni, þannig að flestar merkingar í deildum verslunarinnar eru einungis á íslensku. Við sjáum að þessi áhersla á Ísland hefur góð áhrif á upplifun viðskiptavina okkar. Íslendingar finna að þeir eru komnir heim og erlent ferðafólk fær góða upplifun af Íslandi strax frá fyrstu mínútu.“
Hanna Tryggvadóttir, rekstrarstjóri Fríhafnarinnar, Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, og David …
Hanna Tryggvadóttir, rekstrarstjóri Fríhafnarinnar, Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, og David Martin, annar eigandi M Worldwide.

Engar raðir á kassann

Nýja verslunin er 2.400 fermetrar að stærð og var megináhersla lögð á aukna afkastagetu við afgreiðslu og gott flæði um verslunina. Í komuversluninni eru nú 16 sjálfsafgreiðslustöðvar og fjórir mannaðir afgreiðslukassar.
Fyrir breytinguna voru langar raðir í afgreiðslu helsti flöskuhálsinn og náðu raðir á kassa oft og tíðum langt inn eftir versluninni með tilheyrandi biðtíma og skertu aðgengi að stórum hluta verslunarinnar. Langar raðir heyra nú sögunni til sem er mikil bylting.
Hönnun og skipulag verslunarinnar var unnið með breska hönnunarfyrirtækinu M Worldwide og innréttingar komu frá ítalska fyrirtækinu Imola Retail Solutions í samvinnu við Verslunartækni. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert