Bleikt draumaafmæli dóttur Kourtney Kardashian

Samsett mynd

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian fagnaði 10 ára afmæli dóttur sinnar, Penelope á dögunum. Kardashian systurnar eru þekktar fyrir að halda sérlega glæsilegar afmælisveislur fyrir börnin sín þar sem öllu eru tjaldað til og var afmæli Penelope engin undantekning. 

Afmæli Penelope var hin fullkomna bleika afmælisveisla, en þær mæðgur plönuðu veisluna saman. „Ég elska að leyfa krökkunum mínum að velja þegar kemur að því að halda upp á afmæli þeirra. Við búum til Pinterest borða saman þar sem hún segir mér allar hugmyndir sínar og ég hjálpa henni að koma þeim í framkvæmd,“ sagði Kardashian í samtali við Poosh

Þema afmælisins var pastelbleikt og var bakgarður Kourtney skreyttur hátt og lágt með blöðrum, blómum og bleikum kræsingum. 

Kardashian á þrjú börn, þau Mason, Penelope og Reign með fyrrverandi kærasta sínum Scott Disick. Þau hættu saman árið 2015 eftir níu ára samband, en nú er Kardashian gift tónlistarmanninum Travis Barker. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál