Á von á sínu fyrsta barni

Uzo Aduba sýndi óléttukúluna í fyrsta sinn á Tony-verðlaununum.
Uzo Aduba sýndi óléttukúluna í fyrsta sinn á Tony-verðlaununum. AFP/Angela Weiss

Leikkonan Uzo Aduba á von á barni með eiginmanni sínum Robert Sweeting. Opinberaði hún óléttu sína á Tony verðlaunahátíðinni síðastliðna helgi.

Er þetta fyrsta barn hinnar 42 ára gömlu Aduba, en hún giftist kvikmyndagerðarmanninum Sweeting í laumi árið 2020. Opinberuðu þau ekki hjónaband sitt fyrr en ári seinni. 

Aduba, sem er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt sem Suzanne „Crazy Eyes“ Warren í þáttunum Orange Is the New Black, segist í nýlegri Instagram-færslu vera yfir sig spennt fyrir þessu nýja hlutverki.

View this post on Instagram

A post shared by Uzo Aduba (@uzoaduba)



 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert