Einhver öfundsýki virðist vera hjá Landon Barker, eldri syni trommuleikarans Travis Barker, út í nýfæddan bróður sinn, Rocky Thirteen. Hinn tvítugi Barker viðurkenndi í útvarpsviðtali að hafa hvorki haldið á drengnum né hjálpað föður sínum og stjúpmóður, Kourtney Kardashian, með nýburann frá því hann kom í heiminn hinn 1. nóvember síðastliðinn.
Barker, sem ætlar að feta í fótspor föður síns og reyna fyrir sér í tónlistinni, mætti í útvarpsþátt Jess Lucero á TikTok Radio og ræddi meðal annars um nýja fjölskyldumeðliminn. Barker sagðist hafa vonast eftir lítilli stúlku þar sem hann hefði helst viljað vera eini Barker-strákurinn í fjölskyldunni.
Rocky Thirteen er fyrsta barn Blink-182 trommuleikarans og Kardashian. Fyrir á hún þrjú börn með Scott Disick, Reign, Mason og Penelope, en Barker á soninn Landon og dótturina Alabömu með Shönnu Moakler.
Kardashian og Barker gengu í það heilaga á síðasta ári.
@tiktokradio_siriusxm Has he changed any diapers yet tho? #tiktokradio #tiktokradioirl #landonbarker #friendswithyourex ♬ original sound - TikTok Radio