Atli Már og Katla eiga von á erfingja

Atli Már Steinarsson á von á barni með kærustunni, Kötlu …
Atli Már Steinarsson á von á barni með kærustunni, Kötlu Ómarsdóttur. Ljósmynd/Ragnar Visage

Útvarpsstjarnan Atli Már Steinarsson og sambýliskona hans, Katla Ómarsdóttir, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið greindi frá gleðiréttunum á samfélagsmiðlum. 

„Ég er ólétt,“ skrifaði Katla meðal annars á samfélagsmiðla og birti sónarmyndir. Hún birti auk þess mynd af foreldrunum verðandi á áramótunum. 

Atli Már er dagskrárgerðarmaður á Rás 2. Morgunhanar kannast við rödd hans en hann er umsjónarmaður þáttanna Þú veist betur sem eru á dagskrá Rásar 2 á sunnudagsmorgnum. 

Fyrir rúmlega ári var laxaskál uppáhaldsrétturinn í eldhúsi Atla Más. Það er spurning hvort að það breytist á meðgöngu Kötlu. „Laxa­skál­in sem kær­ast­an mín ger­ir er eitt það besta sem ég fæ,“ sagði Atli Már í viðtali við tímarits Smartlands í október 2022.

Fjölskylduvefur mbl.is óskar Atla Má og Kötlu til hamingju með óléttuna!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert