Næstelsta barn fyrrverandi leikarahjónanna Jennifer Garner og Ben Affleck kom út úr skápnum sem trans maður í jarðarför afa síns sem haldin var í Charleston, höfuðborg Vestur-Virginíu, síðastliðinn laugardag.
Barnið, sem er 15 ára gamalt, hefur sagt skilið við fæðingarnafn sitt og heitir í dag Fin. Fæðingarnafn þess var Seraphina Rose.
Fin hélt minningarræðu um afa sinn William Garner, jafnan kallaður Billy Jack, og byrjaði á því að kynna sig fyrir viðstöddum. „Hæ, ég heiti Fin Affleck.“ Fin klæddist svörtum jakkafötum, hvítri skyrtu og var með svart hálsbindi.
Í febrúar síðastliðnum frumsýndi Fin nýja klippingu og skartar í dag mjög stuttu hári eða svokallaðri „buzz-cut“ klippingu.
Garner og Affleck skildu árið 2015 eftir tíu ára hjónaband. Fyrrverandi hjónin, sem kynntust við gerð kvikmyndarinnar Pearl Harbor, trúlofuðu sig í apríl 2005 og gengu í hjónaband tveimur mánuðum seinna. Saman eiga þau þrjú börn, Violet, Fin og Samuel.
— Oli London (@OliLondonTV) April 9, 2024
Seraphina Rose, 15, announced her new boys name ‘Fin’ whilst appearing with her head shaved at a memorial service for her grandfather over the weekend
She told the memorial service,… pic.twitter.com/GGf5DNBSIX