Breski söngvarinn Robbie Williams hefur tekið að sér að leika aðalhlutverkið í endurgerð kvikmyndarinnar Saturday Night Fever. Það eru Gibb-bræðurnir sem ætla að búa til nútímaútgáfu af myndinni fyrir rúma tvo milljarða króna og hafa fengið Robbie til að fara í hvítu jakkafötin hans Tonys Maneros, sem John Travolta skrýddist í myndinni sem gerð var á áttunda áratugnum.
Frá þessu greinir Ananova og hefur eftir vini Gibb-bræðranna: „Robbie er rétti maðurinn til að leika Tony - hann getur sungið og dansað, hann er myndarlegur og hefur mikla persónutöfra.“