Knattspyrnuhetjan David Beckham keypti heldur betur gómsæta jólagjöf handa konu sinni Viktoríu, súkkulaðigosbrunn. Belgískt súkkulaði flýtur yfir barma brunnsins og mun tilgangurinn sá að dýfa ávöxtum eða öðrum mat í súkkulaðið.
Dagblaðið The Sun segir Beckham einnig hafa keypt Monopoly-spil og annað spil sem heitir Connect Four. Beckham fór þó ekki sjálfur í búðir heldur pantaði varninginn hjá stórversluninni Harrods í Lundúnum. Synir hans, Romeo og Brooklyn, fengu „King Kong-handleggi“ og yngsta barnið, hin 11 mánaða gamla Cruz, fékk rugguhest. Fréttavefurinn Ananova sagði frá þessu.