Sveitatónlistarmaðurinn Willie Nelson og fjórum samferðamönnum hans var birt ákæra í dag fyrir að hafa fíkniefni í fórum sínum eftir að lögreglumenn í Louisiana í Bandaríkjunum stöðvuðu í morgun för langferðabílsins sem tónlistarmaðurinn þekkti ferðaðist með. Í bílnum fundust 675 grömm af maríjúana og um 10 grömm af ofskynjunarsveppum.
Willie Nelson, sem er 73 ára gamall, er þekktur fyrir lög á borð við ,,On the Road Again” og ,,Mama Don't Let Your Babies Grow Up To Be Cowboys". en hann hefur einnig leikið í nokkrum kvikmyndum.