Íslamistar hótuðu framleiðendum South Park teiknimyndaþáttanna dauðdaga ef þeir birtu teikningu af Múhameð spámanni í bjarnargervi í þáttunum. Þegar þátturinn var sýndur var búið að setja hljóðmerki yfir orðið Múhameð og skilti með orðinu „ritskoðað" var birt.
Á vef bandarísku samtakanna Revolution Muslim sagði, að þeir Matt Stone og Trey Parker myndu líklega fara sömu leið og Theo Van Gogh. Van Gogh, sem var hollenskur kvikmyndagerðarmaður, var myrtur árið 2004. Sá sem verknaðinn framdi var heittrúaður múslimi sem var óánægður með mynd Hollendingsins um múslimakonur.