Mila Kunis og Ashton Kutcher virðast yfir sig ástfangin þessa dagana. Til þeirra sást á dögunum í New York borg þar sem þau höfðu það huggulegt, kíktu á kaffihús og í göngutúra á milli þess sem þau létu vel hvort að öðru.
Að sögn New York Daily News vakti athygli að parið stoppaði sérstaklega til að kyssast innilega fyrir framan San Remo blokkina við Central Park, þar sem Kutcher bjó með sinni fyrrverandi, Demi Moore.
Moore er sögð berjast enn við að komast yfir sambandsslitin við Kutcher. Steininn tók þó úr þegar hann gerði samband sitt við Kunis opinbert í júlí síðastliðnum og hefur leikkonan verið í öngum sínum að sögn bandarískra fjölmiðla. Hefur lítið til hennar sést eða heyrst síðan.