Demi Moore kom öllum á óvart þegar hún sótti gala-samkomu í New York í gærkvöldi en mikið hefur borið á fréttum þess efnis að hún sé enn í rusli eftir sambandsslitin við Ashton Kutcher.
Kutcher hefur verið ófeiminn við að láta vel að nýju kærustunni, Milu Kuniz, á almannafæri eins og mbl.is greindi frá hér í gær, við misjafna hrifningu.
Virðist Demi hafa viljað slá á þær raddir að hún sé í öngum sínum og tókst henni það bærilega og vel það eins og sjá má á vef Mailonline hér. Var hún stórglæsileg þar sem hún sat fyrir á myndum ásamt öðrum veislugestum í boðinu sem haldið var til styrktar GEMS-samtökunum sem útvega fórnarlömbum mansals í Bandaríkjunum aðstoð.
Demi forðaðist reyndar ágang ljósmyndara við komuna í boðið og fór inn um hliðarinngang. Hún var hins vegar ófeimin við að stilla sér upp á myndum þegar á veisluna leið enda stórglæsileg.