Leikkonan Mila Kunis hefur séð sig knúna til að taka fyrir sögur þess efnis að hún sé ólétt.
Fóru sögur á flug um meinta óléttu leikkonunnar eftir að til hennar sást í víðum bol við gallabuxur, þar sem hún fékk sér kaffi með kærastanum, Ashton Kutcher, í Los Angeles nú nýverið.
Leikkonan greindi frá því í viðtali við tímaritið Glamour í ágúst síðastliðnum að hana langaði mjög til að eignast börn einn daginn en tíminn nú væri hins vegar ekki sá rétti. Kunis og Kutcher hafa verið par frá því í apríl síðastliðinum.
Segir hún erfitt að gera fjölmiðlum til geðs hvað varðar holdafar. „Það fáránlega var að á meðan ég var að leika í Black Swan [myndinni] töluðu ýmsir um að ég væri orðin allt of grönn,“ sagði leikkonan við Glamour tímaritið. „Síðan þegar ég fór að bæta á mig aftur var talað um að ég hefði litið betur út þegar ég var á við anorexíu-sjúkling,“ bætti hún við. „Þú getur ekki gert þeim til geðs.“