Ashton Kutcher er sláandi líkur Steve Jobs á fyrstu ljósmyndinni sem birtist af honum í hlutverki Apple stofnandans heitins.
Frumsýning jOBS, myndar um uppvöxt og feril frumkvöðulsins, mun slá botninn í næstu Sundance-kvikmyndahátíð, sem fram fer í Park City í Utah dagana 17. til 27. janúar næstkomandi.
Í myndinni er farið yfir lífshlaup Jobs m.a. hvernig hann fór úr því að hætta í háskóla og verða einn áhrifamesti frumkvöðull á sviði tölvu- og farsímatækni síðustu ára.
Kutcher hefur til þessa fremur verið þekktur fyrir gamanleik. Að sögn John Cooper, stjórnanda kvikmyndahátíðarinnar, er algengt að myndir sem sýndar eru á hátíðinni sýni leikara í nýju ljósi. „Margir þessara leikara eru að leitast við að víkka þægindaramma sinn. Fyrir þeim snýst hún [hátíðin] um að gera eitthvað öðruvísi,“sagði Cooper. Robert Redford er sem fyrr verndari kvikmyndahátíðarinnar en hann kom að stofnun hennar.
Jobs lést sem kunnugt er í október árið 2011 eftir átta ára baráttu við krabbamein í brisi. tival.
Nánar er hægt að lesa um kvikmyndir á dagskrá næstu Sundance-kvikmyndahátíðar á vef breska ríkisútvarpsins hér.