Engin smá morgungjöf! Kate Winslet og nýi spúsinn Ned RocknRoll eru á leið út í geim í boði Richards Bransons, frænda hans.
Hin 37 ára Titanic-leikkona og Ned RocknRoll, frændi Virgin-mógúlsins, giftu sig sem kunnugt er á dögunum. Kom Ned konu sinni á óvart með geimferðinni en hann starfar m.a. hjá frænda sínum að Virgin Galactic geimferðaáætlun þess síðarnefnda. Á Richard að hafa átt hugmyndina að því að parið skellti sér og það á hans kostnað, segir á vef The Sun.
Miðar í fyrrnefndar ferðir eru allt annað en gefins. Kostar lítil 124 þúsund pund, eða sem svarar tæpum 26 milljónum króna, að skella sér. Nú þegar hafa yfir 530 einstaklingar bókað sér miða, þ. á m. leikararnir Ashton Kutcher og Russel Brand. Þá hefur Richard Branson boðið vísindamanninum Stephen Hawking í eina af fyrstu ferðunum, segir á vef The Telegaph.
Í ferðunum verður flogið 60 mílur eða um 96 kílómetra upp í himinhvolfið. Munu farþegar hafa færi á að upplifa þyngdarleysi og að sjá kúrfu jarðar meðan á ferðinni stendur en alls tekur hún um tvær klukkustundir.
Vonast er til að ferðirnar geti hafist á næsta ári.