Mila Kunis elskar að elda og ekki síst mat frá heimalandinu, Úkraínu, fyrir kærastann Ashton Kutcher, hvenær sem færi gefst.
„Ég elska að elda [...] Ég er best í rússneskum mat en hann lærði ég að elda af mömmu minni þegar ég var lítil,“ sagði hin 28 ára gamla leikkona í samtali við breska táningatímaritið More á dögunum. Mila fæddist í Úkraínu og ólst þar upp til sjö ára aldurs, þegar fjölskylda hennar fluttist til Los Angeles.
Segist leikkonan virkilega elska að elda og hún geti eytt ófáum stundunum í að vafra um stórmarkaði sem opnir eru fram á nætur.