Mad Men-stjarnan January Jones segist ekkert munu gefa upp við fjölmiðla um hver sé faðir hins 20 mánaða sonar hennar, Xanders.
Leikkonan hefur reglulega verið spurð út í faðerni sonarins í gegnum tíðina en hefur aldrei gefið neitt upp. Áður en hann kom til hafði hún m.a. átt í ástarsamböndum við leikarana Ashton Kutcher og Jason Sudeikis.
„Það er einkamál sonar míns og kemur almenningi ekki við,“ svaraði Jones þegar blaðamaður New York Times spurði hann út í málið á dögunum. Bætti hún við að Jack Nicholson hefði eitt sinn ráðlagt henni að standa þéttan vörð um einkalíf sitt. „Annars mun fólk rífa þig í sig,“ segir hún og tekur reynsluboltann sér til fyrirmyndar.
Ekki virðist þó endanlega útséð um að hún muni einhvern daginn gefa meira upp en hingað til. „Konur ættu að eiga fullt af leyndarmálum [...]. Hvað ættum við annars að skrifa um í æviminningunum okkar?“ bætti leikkonan við, staðföst í sínu.