Leikkonan Demi Moore missti af útskriftarathöfn dóttur sinnar, Scout, á sunnudaginn að sögn heimildamanns Radar Online.
Leikkonuna var hvergi að sjá, hvorki við athöfnina né í matarboði sem haldið var seinna um kvöldið í tilefni útskriftarinnar.
„Hún átti að vera á staðnum þannig að allir voru að velta því fyrir sér hvar hún væri. Það sást ekkert til hennar alla helgina, en það skemmtu sér allir vel án hennar,“ sagði heimildamaðurinn.
Fyrrum eiginmaður hennar, Bruce Willis, mætti á athöfnina með dætrum sínum tveim, Rumer og Tallulah ásamt kærasta Rumer. Eftir athöfnina stillti fjölskyldan sér svo upp fyrir fjölskyldumyndatöku.
Samband Moore við dætur sínar, aðallega Rumer, er sagt hanga á bláþræði eftir að Moore skildi við leikarann Ashton Kutcher. „Moore og Rumer eru að vinna að sambandi sínu en vandamálið er að Moore vill bara fara út að skemmta sér með Rumer, dóttur sinni.“